Hallo! Ich bin jetzt in Tübingen und wenn jemand von euch Deutsch versteht dann...
Djók.
Ég er allavega á talfærninámskeiði í Tübingen í Þýskalandi um þessar mundir. Búin að vera í viku og er fyrst að kíkja á netið núna. Gisp. Mjög ljúft að fullnægja þessari fíkn minni.
Hér er allavega SNILLD! Bý hjá mjög ljúfri fjölskyldu, Familie Becker. Það er fullt að gera í skólanum en fyrir utan það er ekkert rooosalega mikið að gera hérna í Tübingen. Svo er líka sunnudagur og allt er lokað nema söfn. Allavega. Hingað til er ég aðallega búin að vera í skólanum. Það er sjúklega næs og allir kennararnir eru eitthvað yfirnáttúrulega hressir. Ég er líka búin að læra fullt og nota þýskuna óspart. Gaman.
M.a. er ég búin að fara í vínsmökkun, óperuna í Stuttgart, skoðunarferðir um kirkjur og hallir o.fl. Búin að drekka slatta af Dunkles Hefe. MMM ÞÝSKUR BJÓR. Svo er eiginlega ekkert hér að éta nema pulsur og hvítt hveiti. Frekar hardcore í magann. Á undan vínsmökkuninni fengum við sko Bratwurst, Saumagen, Leberknödle og Sauerkraut. Set mynd seinna. Það bragðaðist allt betur en það leit út fyrir og hljómaði. Alveg sjúklega þungt í magann samt. Fór í smápartý í gær eftir Óperuna. Þar var mikið af hressum þjóðverjum að dansa við 90's one hit wonders. Við erum búin að mynda góðan hóp við sem erum á námskeiðinu og ég er búin að eignast góða vini er ég viss um. Það er alltaf gaman. Annars ætla ég að fara að kvíða fyrir kvöldmatnum hérna heima núna... fékk nefnilega þykka kartöflusúpu með RISA pulsu útí í morgunmat. Svo fékk ég kökur og te og bráðum kemur Angelika Becker pottþétt og reynir að troða í mig ávöxum og brauði svona aðeins fyrir matinn. Ég vona allavega að það verði ekki aftur pasta með súrkáli í kvöldmat. Það var rosalegt...
Tschüss frá Tübingen.
Birta.